Æska og nám



Fjölskylda

Vigdís Finnbogadóttir er fædd í Reykjavík 15. apríl 1930. Foreldrar hennar voru Finnbogi Rútur Þorvaldsson (1891-1973) hafnarverkfræðingur, síðar prófessor í verkfræði við Háskóla Íslands og Sigríður Eiríksdóttir (1894-1986) hjúkrunarfræðingur, formaður Hjúkrunarfélags Íslands, eins og félagið hét þá, um 36 ára skeið (1924-1960).

Sigríður var hjúkrunarfræðingur að mennt og mikill félagsmálafrömuður sem lét til sín taka bæði innanlands og utan. Foreldrar Vigdísar voru meðal stofnenda Krabbameinsfélags Íslands árið 1949 en Vigdís hefur verið verndari félagsins síðan 1986.

Þorvaldur bróðir Vigdísar fæddist þegar hún var á öðru ári. Hann lést af slysförum sumarið 1952. Þorvaldur hafði þá nýlokið stúdentsprófi og hugði á nám í verkfræði.

Vigdís ólst upp í Reykjavík en var í sveit á sumrin í Eystra-Geldingaholti í Gnúpverjahreppi í Árnessýslu.

Vigdís giftist Ragnari Arinbjarnar, síðar lækni, í desember 1954. Þau skildu eftir 7 ára hjónaband.

Dóttir Vigdísar er Ástríður Magnúsdóttir myndlistamaður, f. 1972. Maður hennar er Eggert Elmar Þórarinsson tæknifræðingur, f. 1973 og dætur þeirra eru Aþena Vigdís, f. 2000 og Eva María, f. 2004.

Nám

Vigdís lauk stúdentsprófi úr máladeild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1949. Þá lá leiðin til Frakklands þar sem hún stundaði nám í frönsku og frönskum bókmenntum með leikbókmenntir sem sérgrein við háskólana í Grenoble og Sorbonne í París. Þegar heim kom lagði hún stund á ensku og frönsku við Háskóla Íslands með áherslu á leikbókmenntir. Þá stundaði hún nám í uppeldis- og kennslufræðum. Síðar nam hún leiklistarsögu við Hafnarháskóla og franska málsögu við háskólann í Uppsölum. Árið 1970 tók Vigdís ársleyfi frá störfum og dvaldi í Frakklandi þar sem hún kynnti sér samskipti og menningartengsl Íslendinga og Frakka á 19. öld, hinni miklu skútuöld Frakka á Íslandsmiðum.

Upphaf síðu


Vigdís