
Vigdís hefur alla tíð látið að sér kveða þegar kemur að lýðræði, jafnrétti og mannréttindum. Árið 1997 stofnaði hún Heimsráð kvenleiðtoga (Council of Women World Leaders) ásamt Laura Lizwood sem er framkvæmdastjóri ráðsins. Vigdís gegndi formennsku í ráðinu á mótunarárum. Í heimsráðinu sitja fyrrverandi og starfandi forsetar og forsætisráðherrar úr röðum kvenna. Markmið ráðsins er að hvetja konur í valdastöðum um allan heim til að taka höndum saman um að vinna þeim málum brautargengi sem skipta sköpum fyrir konur og jafnrétti kynja. Með því að fjölga kvenleiðtogum, auka vald þeirra og vekja athygli á þeim vill Heimsráðið stuðla að góðum stjórnarháttum og efla lýðræðið. Ráðið kom að heimsfundi menningarráðherra úr röðum kvenna sem haldinn var í Reykjavík 2005.
Byrjun síðu
Vigdís gegndi formennsku í ráðgjafarnefnd Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna – COMEST á árunum 1997-2001. Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um vægi siðfræðilegra gilda í ákvörðunum er varða vísindi og tækni.
Vigdís hefur gegnt starfi velgjörðarsendiherra Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í tungumálum frá árinu 1999. Hún er fyrsti og eini talsmaður tungumála á heimsvísu. Hlutverk velgjörðasendiherra felst í því að vekja athygli á mikilvægi tungumála fyrir menningarlega fjölbreytni og standa vörð um tungumál sem eru í útrýmingarhættu.
Byrjun síðu
Vigdís er félagi í Club de Madrid en það eru óháð samtök um 70 fyrrverandi forseta og forsætisráðherra sem kosnir hafa verið í lýðræðislegum kosningum. Markmið samtakanna er að efla lýðræði um allan heim með því að nýta krafta og sérþekkingu félagsmanna. Þetta er gert í samstarfi við önnur samtök en jafnframt veitir Club de Madrid ráðgjöf og stuðning þeim þjóðarleiðtogum og stofnunum sem starfa að því að koma á lýðræðislegum breytingum. Club de Madrid er fjölmennasti vettvangur fyrrverandi þjóðarleiðtoga í heimi.
Byrjun síðu
Vigdís var verndari Bjartsýnisverðlauna Brøste. Peter Brøste rekur stofnun þeirra til ársins 1980 þegar Vigdís tók við embætti forseta Íslands.
„Fyrsta opinbera heimsókn hennar var til gamla landsins, Danmerkur, þar sem hún kom fram í viðtali í danska sjónvarpinu ásamt Margréti drottningu. Ég verð að segja að ég hreifst af forseta Íslands, hún var mjög falleg, sterk og blátt áfram, og það geislaði af henni svo mikil bjartsýni. Hún hvatti til bjartsýni og samvinnu smáþjóða og þetta veitti mér innblástur,“ segir Brøste, sem lét ekki sitja við orðin tóm og hóf þegar að undirbúa stofnun verðlauna er árlega skyldu veitt íslenskum listamanni og kennd við bjartsýni. Hann spurði Vigdísi hvort hún vildi vera verndari verðlaunanna og svaraði hún því strax játandi. Í fyrstu dómnefnd sátu Gunnar J. Friðriksson framkvæmdastjóri, Gylfi Þ. Gíslason, fyrrverandi menntamálaráðherra og Árni Kristjánsson píanóleikari. Þegar Vigdís lét af forsetaembætti bað Brøste hana að taka sæti fjórða nefndarmannsins en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, varð verndari verðlaunanna.
Byrjun síðu
Vigdís var kjörin, fyrst allra, í Heiðursráð Krabbameinsfélagsins árið 1986, á afmæli félagsins. Vigdísi voru veitt Landgræðsluverðlaun Íslands árið sem hún lét af embætti forseta, 1996. Sama ár hlaut hún Sókrates-verðlaunin, Svíþjóð. 1997 hlaut hún viðurkenningu Málræktarsjóðs en Vigdís hefur alla tíð lagt ríka áherslu á ræktun íslenskrar tungu. Í Svíþjóð sama ár tók hún á móti viðurkenningum Clöru Lachmann og Jakobs Letterstedt en þá síðarnefndu fékk hún fyrir að kynna norræna menningararfleifð erlendis. Sama ár veitti hún móttöku Ceres-orðu Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem viðurkenningu fyrir störf sín í þágu matvælaöryggis og fyrir stuðning við réttindi minnihlutahópa og sem brautryðjandi að alþjóðasamstarfi um mannréttindi. Árið 1998 hlaut hún Mårbacka verðlaun Selmu Lagerlöf fyrir störf sín að umhverfisvernd í anda nóbelskáldsins.
Byrjun síðu
Vigdís situr í heiðursráði sjóðs sem kenndur er við Jacques Chirac fyrrum Frakklandsforseta. Markmið sjóðsins er að standa vörð um líffræðilega fjölbreytni, samræður milli menningarheima og að efla virðingu fyrir umhverfinu.
Byrjun síðu
Vigdís Finnbogadóttir tók við verðlaunum samtakanna „Ladies First International Club“ í París í desember 2008. Þetta var í fyrsta sinn sem verðlaununum var úthlutað en markmið þeirra er að heiðra konur sem skarað hafa fram úr, kveikt vonarneista og verið yngri kynslóðum fyrirmynd. Í tilkynningu frá samtökunum segir að Vigdís Finnbogadóttir hafi með fjölmörgum alþjóðlegum stofnunum unnið ötullega að því að efla framþróun í menningarmálum og vísindum. Samtökin „Ladies First International Club“ voru stofnuð í þeim tilgangi að hvetja konur til aukinnar þátttöku í þjóðlífi, stjórnmálum og viðskiptum. Samtökin skipa 300 atkvæðamiklar konur frá 40 löndum.
Byrjun síðu
Vigdís var kjörin sendiherra leiklistar í heiminum á þingi Alþjóðaleiklistarstofnunarinnar, ITI, í Madrid á Spáni árið 2008.
Aðrir sendiherrar eru:
Þau Vigdís og Vaclav Havel hafa hist bæði sem þjóðarleiðtogar og á vettvangi leikhússins. Alþjóðaleiklistarstofnunin færir rök fyrir valinu með því að hver sendiherra hafi ýmist í starfi, með nærveru sinni eða með því að ljá nafn sitt góðum málstað stuðlað að því að ná markmiðum stofnunarinnar sem eru að efla vægi leiklistar í heiminum. Tengsl þeirra við ITI sé gömlum félögum og nýjum uppspretta nýrra hugmynda.
Byrjun síðu
Vigdís hefur alla tíð verið mikill velgjörðarmaður Sólheima í Grímsnesi og gaf meðal annars eftirstöðvar kosningasjóðs síns á sínum tíma til starfseminnar. Í tilefni 78 ára afmælis Sólheima 2008 var þessa minnst með því að nefna nýtt þjónustuhús í höfuðið á Vigdísi - Vigdísarhús. Vigdís opnaði húsið formlega og Sigurbjörn Einarsson biskup flutti blessunarorð. Í húsinu er mötuneyti, bakarí, matvinnsla og skrifstofur. Það er 840 fermetrar að stærð og er önnur af tveimur höfuðbyggingum Sólheima.
Byrjun síðu
Vigdís er heiðursdoktor og heiðursprófessor í háskólum og stofnunum víðsvegar um heim.
1983: Honorary distinction, Chancellerie des Universités de Paris, Frakklandi