Um www.vigdis.is



Stjórnvöld áttu frumkvæði að smíði þessa vefs, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra fól Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum að setja upp heimasíðu með upplýsingum um störf og hugðarefni Vigdísar. Stofnunin mun hafa umsjón með vefnum og verður hann hýstur á heimasvæði Háskóla Íslands. Allar góðar ábendingar og upplýsingar sem gagnast geta vefnum óskast sendar á netfangið info@vigdis.is.

Megináhersla er hér lögð á forsetatíð Vigdísar 1980-1996. Heimilda hefur verið leitað víða, m.a. hjá forsetaskrifstofu, Svanhildi Halldórsdóttur, kosningastjóra Vigdísar, Sigríði Th. Erlendsdóttur sagnfræðingi, hjá Kvennasögusafni og á skjalasöfnum. Stofnun Vigdísar hefur látið í té upplýsingar og myndefni. Auk þess hefur Gunnar Vigfússon ljósmyndari góðfúslega veitt leyfi sitt fyrir afnotum af myndum sem hann tók í forsetatíð Vigdísar, sem og myndlistarkonurnar Arngunnur Ýr Gylfadóttir og Guðrún Einarsdóttir fyrir notkun listaverka í haus síðunnar.  Erla Sigurðardóttir og Rósa Erlingsdóttir hafa safnað saman efni og sett vefinn saman. Eftirfarandi bækur hafa komið út um Vigdísi:

  • Vigdís forseti – Kjör hennar og fyrsta ár í embætti. Guðjón Friðriksson og Gunnar Elísson tóku saman. Bókaútgáfan Örn & Örlygur, Reykjavík 1980, aukin og endurbætt útgáfa 1981
  • President VIGDÍS – Her Election and First Year in Office. Compiled by Gudjón Fridriksson and Gunnar Elísson. Published by: Örn & Örlygur, Reykjavik 1980 and 1981 (revised edition)
  • Ein á forsetavakt – Dagar í lífi Vigdísar Finnbogadóttur. Steinunn Sigurðardóttir. Iðunn, Reykjavík 1988.

Vigdís